Gyllinæð

je beibí
--Janúar
- Foo Fighters... alvarlega nett
- Ný sambýliskona flytur inn.. Anna Begga Halldórsdóttir
- Hún er ágæt.. Ruslar svoldið mikið en annars fín
- Síðan bara bakkinn og maxað
- Woodmere's stundaður
- Nenad Serbinn hennar Önnu Beggu gistir heima 1-2 í viku
- Hann var nettur.. örugglega bara eitthvað basic samt
- Æfingaleikir held ég.
- Mikið maxxað og mikið XBox
- Woodmere's og Auburn ferðir
- Lagasmíðar
- Serbinn hennar Önnu byrjar að gista 3 daga í viku hérna
- Menn brunnu gjörsamlega í drasl
- 3 æfingaleikir
- Úrslitin úr leikjunum hingað til hafa verið: 3-1 og 2-1 sigrar og 1-0 og 3-0 töp
- Springbreak sem var suddalegt...
- Bjössi, Tóti, Siggi, Gústi, Finnur, HG og Krissi stjórnuðu PanamaCity eins og enginn væri morgundagurinn
- Tónleikar á ströndinni, brunnið í drasl, svamlað í sjónum, mikið týnst, áfengiskaup ársins, Nekt Nekt Nekt og Nekt og síðan bara almennt kjaftæði
- Woodmere's og Auburn
- Serbinn byrjar að gista 5 sinnum í viku hérna
- + 25 stig og sól
- Menn farnir að æfa eins og skepnur
- Drykkjupása frá 12. apríl
- Og menn herða sig í skólanum
- Serbinn hennar Önnu Beggu er hérna 24 tíma á sólarhring, en þau eru samt ekki saman eða neitt
Ef menn vilja detail á einhverjum atriðum er síminn á Saddleback Ridge: 01-334-5931295
Hérna er svo verið næstu 10 dagana.. Lítur út fyrir að maður eigi ekkert eftir að gráta bakkann næstu daga
http://www.weather.com/weather/tenday/USAL0375?from=36hr_topnav_undeclared
Æj þetta er tilgangslaust blogg.. Stafir lýsa bara ekki ástandinu hérna og myndakerfið er fáranlegt.. Þið eruð samt nett..

Go back to Iceland!!
Annars erum við bara slakir að horfa á raunveruleikaþáttinn hans Snoop Dog og var hann að chilla nettur með D. Beckham en kominn tími til að fara á æfingu þannig við höfum þetta bara stutt..
Ferðin út var fín fengum 4 tíma einkarúnt um New York þegar við komum eftir að hafa misst af fluginu... Skoðuðum Brooklyn Bridge, Empire State, Madison Square Garden, Frelsisstyttuna, Times Squere, Ground Zero og Central Park og allan pakkann... Tókum fullt af snilldarmyndum sem við eyddum svo óvart út daginn eftir... gaman :)
Síðan var 80's party um helgina sem var stemmari og Recruit helgi næst þar sem strákar eru að koma á trial í skólann og við spilum fótbolta við hann...

Gott í bili... hér eftir verða bara videoblogg og það verður aðeins meira en lítið skemmtilegt... blelluð í bili...

Alltaf að blogga!!! Fullt af nýjum myndum
Já sæl gaman að sjá ykkur...
Þá erum við að klára prófin og menn í frekar góðum gír bara... Heim eftir 2 daga og það verður náttúrulega snilld.. Svo er það laugardagurinn 15. des... Best væri að menn kommentuðu hérna og tilkynntu um mætingu í miðkjarna Reykjavíkurborgar það kvöld...
Við að spá í að fá okkur byssu.. Eða ekki hvort heldur hvernig byssu, maður er ekki maður með mönnum hérna nema að eiga byssu.. Líklegt að Desert Eagle verði fyrir valinu, verst að hún slær svolítið en það var önnur þyngri byssa þarna í búðinni sem var nákvæmari en dálítið dýrari, þvílíkt almennilegur karl í búðinni leyfði okkur að prófa og svona þarna fyrir aftan búðina, förum aftur þarna seinnipartinn á morgun og veljum einhverja netta... Fólk má endilega koma með hugmyndir?? 
Hversu mikil snilld er það að vera út á bakka í dag í tæplega 30 stiga hita og sól 10. des, sérstaklega þegar maður heyrir að allt hafi verið að fjúka á klakanum..
En annars hvetjum við fólk til að mæta 13. des klukkan 9 og taka á móti okkur.. Jói Gísla skjalfesti það áðan að hann ætlaði að sækja okkur en við eigum enn eftir að sjá það gerast.. 
Svo var Dodgeball mót um daginn og það var mikið stuð.. Gaman að skjóta í kennarana sína og svona... Og vorum við með íslenskt lið.. kúúl
En nokkrar hressandi myndir að lokum þar sem axlaböndin eru allsráðandi..Stuttklipptur og tanaður


Menn að ræða framtíðina

Steinþór, Grassi og Kári eða "Mambo nr. 5" eins og hann er yfirleitt kallaður því hann er svaðalegur á dansgolfinu

S. Sörensen að fálma byssurnar




Eitthvað í fréttum annars??? Jólin??
jááá nýtt blogg!!!
Tóti og Bjössi hittust í kaupfélaginu í Alabama og fóru að spjalla
Bjössi: Blessaður maður.. hvað ert þú að gera hér?
Tóti: Ég?? Ég er bara í skóla og svona hérna. Bara nettur sko. Hvað er í fréttum??
B: Gott sko. Reyndar farið aðeins að kólna og svona en það er allt í lagi. Svo duttum við út í undanúrslitum í Nationals.
Duttum út á golden goal fyrir Concordia en vorum þá orðnir einum færri. Höfðum áður unnið Southern Nasareth og Lindsay Wilson sem er búinn að vera besti skólinn í þessu undanfarin ár. En af þér?
T: Já en frábært ég var einmitt líka þarna, dálítið kalt í Kansas en alveg yndislegt að vera með honum Bjössa á hótelherbergi í næstum tvær vikur að kúra bara á myspace og svona.
Svo vorum við svo almennilegir við housekeeping konurnar að þær þrifu aldrei herbergið okkar heldur sögðum við þeim alltaf að fara bara og sváfum lengur. Svo erum við ekkert búnir að fara í skólann í 3 vikur útaf Nationals og thanksgiving frínu. Eitthvað krassandi af þér?
B: Já mjög margt. Vá hvað þú ert flottur í þessum sokkum.. Bráðum fer ég í jólafrí og þá ætla ég að fara á fulltfullt af firmamótum. Þú mátt vera með mér í liði? tíhí
T: Takk. Vá hvað það var huggulegt í gærkvöldi. Þá fórum við á karókí og sungum fullt fullt af lögum og síðan alltaf þegar það var verið að kynna okkur þá skírðum við okkur “Ég er Mella”, “ég vil brund” eða “Ég er með hælsæri” og fleira.
Voðalega skemmtó þegar konan sagði í mígrafóninn “ég vil brund” þegar hún var að kynna okkur.
B: Tíhíhíhí. Þú ert algjört æði. En allt er dásamlegt. Við fórum einmitt í keilu í gær með og skiptum í 2 fjögurra manna lið. Ég, Gústi, Siggi og Svenni á móti Tóta, Steinþóri, Gústa og Kára. Það var æði.
Tapliðið úr hverjum ramma átti að kaupa 4 könnur af bjór á tapliðið og mitt lið tapaði 3-2. Það var samt yndislegt því þetta snýst nú bara um að vera með. Síðan héldum við með liðin áfram og fórum í actionary þar sem liðin völdu 20 hluti fyrir hitt liðið að leika. Það var alveg dásamlegt. Mér finnst þú sætur.
T: Æji takk þú ert það líka.. híhí.. Já en bráðum fer ég til íslands af í jólafrí.
Tíminn er búinn að líða svo obboslega hratt hérna að ég verð bara feiminn. Ertu búinn að heyra um hljómsveitina??
B: Nei váá ertu í hljómsveit??
T: Já, og það er bestasta hljómsveit í heiminum. Erum alltaf að semja lög og setja bráðum 3 ný lög á myspace.com/squirtrokk.
B: Vá mér langar að vera í hljómsveit
T: Þú mátt vera í hljómsveit með mér
B: Í alvörunni, ég elska þig
T: Ég elska þig 10 sinnum meira, kysstu mig
B: Með glöðu geði
(Síðan fóru Bjössi og Tóti í sleik og lifðu hamingjusamir í 8 ár)
Takið eftir vel völdum brosköllum
Gott að kúra á bakkanum

Könguló sem bjó um sig heima

Á Kings Of Leon tónleikum

Í eldhúsinu

Stemning í búningsklefanum... Gústi, Svenni og einhvers staðar í myrkrinu leynist Manny Mugu

Hvar eiga menn svo að spila næsta sumar?? Einhverjar uppástungur??
Jamm
Frá landi tækifæranna eru góðar fréttir. Búnir að vera hérna í ca 2 og hálfan mánuð og erum eins og innfættir með gríðarlegan suðurríkjahreim og ekki ólíkir Matthew Mcconaughey. Kominn 1. nóv og ennþá bongó blíða sem er mjög nett.
Lífið gengur sinn vanagang hér á Saddleback og menn finna sér alltaf eitthvað að gera. Búnir að búa til skemmtilega leiki sem við getum verið í á sundlaugarbakkanum..
Skólinn gengur vel... Sumir kennararnir eru aðeins erfiðir og við erum aðeins að ströggla í listaáfanganum. Þar erum við að mála myndir og eitthvað eins og við séum 7 ára stelpur og skila inn myndum af hestum og þannig bulli og teikna eitthvað fólk.. Okkur finnst kennarinn ekki alveg vera að meta myndirnar okkur nógu vel..

Boltinn gengur sæmilega. Úrslitakeppni í Regionals núna og ef við vinnum það förum við í Nationals í Kansas. Verður spennandi að sjá.
Annars á hljómsveitin okkar allan okkar hug og hjarta og í dag eða á morgun verður sett lag inn á myspace.com/squirtrokk sem ber heitið "Menntaskólaárin" og eru miklar vonir bundnar við það lag..

Í gær fórum við í háskólabæ sem heitir Auburn og þar er gríðar góð stemning á miðvikudagskvöldum af því að það er frí í skólanum á fimmtudögum. Þar var halloween og ég er engann veginn að fatta þetta, þetta er 3 skiptið sem við förum á grímuböll eða eitthvað á 3 vikum. Það má greinilega vera dressaður allan októbermánuð.. En við skrópuðum í búningum núna en vorum smá í því að stela höttum og dóti af öðrum.

Hérna er Steinþór upptökumaður á hljómsveitaræfingu.. þar er glatt á hjalla

Hérna er Tóti á heimili okkar að spá í hvort hann eigi að taka til.. eennn mikið að gera í skólanum svo maður gerir það bara á morgun..


Á leiðinni til Auburn og hlusta og syngja með Squirt-lögunum

Fengum lánaða búninga hjá fólki og eitthvað fínt

Þarna var alveg endalaust af fólki í mörgum sölum

Fyrir utan staðinn að gíra sig fyrir að fara inn

Þessi var fínn

Annars er þetta orðið þreytt þetta grímu stand.. Einkennilegt hvað Bandaríkjamenn nenna þessu mikið
Svo geta menn pantað gigg hérna og minnum fólk bara á að kýkja á myspace.com/squirtrokk
Kommentið svo eins og karfi í koníaksblöndu..
Ástarkveðjur
Halloween gengin í garð!!
Hérna koma nokkrar myndir og fleiri eru væntanlegar

Bjössi, Tóti, Kári og Steinþór.....þú ert ekkert að þora í okkur sko. Nema Toni, hann væri sennilega búinn að snúa okkur niður

Imba, Svenni, Pála, Eva og Arnar

Gústi og Svenni rándýrir eins og alltaf. Gústi reyndar gleymdi að fara í búning þannig að hann mæti bara eins og hann er alltaf.

Siggi var á svæðinu...hann dressaði sig upp sem Lína Langsokkur.

Vitum ekki alveg hver af okkur er á þessari mynd

Dr. Mikel var auðvitað og var virkilega hress.

Gengið...stelpa sem sýndi mikið hold og kærastan hans Steinþórs að sötra rauðvín...þægileg stelpa

Ágúst var á svæðinu, drakk sig hauslausan og endaði kvöldið vel....og við vitum alveg hvernig það endaði Ágúst minn
Þetta kvöld var hin besta skemmtun. Kvöldið endaði vel hjá sumum (Grassi) og fengu margir að njóta þess. Kvöldið endaði líka ílla hjá sumum (Kári) en það er bara eitthvað sem fylgir þessu. Alltaf er hægt hlægja vel daginn eftir og segja....djöfull var gaman í gær maður
Langt síðan.....sæææælar núúúú

En nokkrir punktar fyrir þá sem vita ekki hvað hefur gengið á undanfarið:
- Búnir að keppa hátt í 14 leiki, vinna 12 og skíta upp á hnakka í 2
- Unnum LEE sem gaf okkur 640 stig
- Erum ekki ennþá búnir að fatta þetta heimskulega stigakerfi hérna í USA
- Afhverju svara Donys aldrei Bjössa á msn??
- Judd kennari er að brjóta alvarlega á okkur í Business áfanganum...hann er ekki með þetta

- Tinna Mark(Kærasta Sigga), Adda og Ingibjörg voru í heimsókn
- Þær eru gjörsamlega með þetta
- Nammi tópas-flaskan sem þær komu með
- Fór ílla í suma, vel í aðra

- Gaman á sundlaugarbakkanum, samt bítur sólin ekkert á okkur
- Steinþór er með kærustuna sína hana Sunnu í heimsókn hún kom á sunnudaginn og fer á sunnudaginn...sunnulega á hún eftir að hafa það gott hérna..
- Fórum á Kings Of Leon tónleika

- Sjit hvað þær voru góðir og stemningin í botni....þarf eitthvað að ræða það??

Svo ætlum við nú aðeins að kynna fagmennina sem eru með okkur hérna í Alabama....en hérna úti er slatti af íslendingum sem eru alveg með þetta og eru þægilegir út í gegn:
Kári aka Sinnepið...kemur frá Kópavogi og er frægur fyrir sín agabrot. Við höldum að hann hafi misst af fleirum leikjum um ævina heldur en hann hefur spilað. Ef það er ekki vegna orðbragðs, fantabragða eða að sofa yfir sig þá nær hann alltaf að koma sér í vandræði.

Gústi aka Stólinn....hann er með KSÍ, síðu 390 á textavarpinu og ja.is allt í skallanum. Hann er maðurinn sem maður leitar til ef maður vill læra nýja dansa eða líður illa og á hann það til að hækka rödd sína mjög mikið við ótrúlegustu aðstæður.

Ágúst aka Skonsan....segjum bara eins og í einum þætti "Ágúst er með svo stórt tippi að það er með olnboga". Hann spilar körfubolta hérna í skólanum með konuliðinu og er víst einn af 8 bestu í því liði. Hann sér um að hafa húsið hreint og er hann orðin vel pirraður á okkur stundum. En við ráðum vel við hann þannig að ekki erum við hræddir.
Siggi Sör aka Fiskikarið....er mjög frjósamur einstaklingur og finnst honum fátt skemmtilegra en að spila Popplag í G-dúr. En hann er mjög góður á gítar og röddin á honum minnir mann á öndina hans. Hann er með þann kæk að hrækja á fólk sem er með tennisolnboga.
Steinþór aka Leirinn...sennilega massaðasti maður sem Breiðablik hefur alið af sér og fer hann létt með það að taka kothnís. Hann á það til að vera andsetin og tala eitthvað tungumál sem enginn skilur og gleður það mikið þá sem verða viðstadda.

Svenni aka Pilsnerinn....kemur að norðan og nei við hötum hann ekkert fyrir það. Sögur segja að hann sé á við heila kynfærabúð í rúminu. En grætur hann 7-1 tapi á Seyðisfirði þegar hann spilaði með Leiftri/Dalvík. Pála er snittan hans Svenna hérna úti og hefur hún gaman af torfærubílum
Arnar aka Mulningsvélin....hann helsti styrkur er að brjóta hnetur með enninu á sér sem gerir Imbu að konu. En Imba er þrællinn hans og hans helsti styrkur en hún er einnig hérna úti í skóla
Anna Begga aka Pítan....virkilega nett stelpa sem nýtur þess að hræra í heitum graut Blikana. Hún flutti hingað fyrir 8 árum og er ekki í skóla heldur vinnur við að selja marmelaði fyrir utan húsið sitt.
Annars er þetta dæmigerð kvöldstund á Saddleback... Verið að kúra yfir Family Guy, þarna má sjá mjög tanaðan mann lengst til hægri..

Mikið hefur afrekast hérna í lagasmíðum, 1 lag klárt og 3 önnur langt komin og viljum við fá nafn á hljómsveitina hérna í kommentum... Mjög mikilvægt... Sá sem kemur með besta nafnið fær góð verðlaun.
Bætum við myndum í þetta blogg á næstu dögum..
Golf, Dale og Takkaskór

Dómararnir hérna eru hræðilegir það er ekkert annað hægt að segja um það.. Bjössi var betri dómari í leiknum þar sem hann missti af 2 hrákum og 3 slagsmálum í leik Hugins - Sindra í 4. flokki kvenna árið 2004 forðum daga..

Við erum búnir að spila mikið af útileikjum og rúnta um fylkin hérna í nágrenninu sem er ágætt því menn eru alltaf með nettar myndir í dvd spilaranum fyrir utan "Excorsims of Emily Rose" sem eitthvað goth ákvað að smella í spilarann.
Svo er heitasta fréttin á huginn.org að Tóti og Bjössi séu að fara að taka við Huginn.. Og eru samningarviðræður á lokastigi..
Erum komnir með nokkur leikmannamál á hreint og ætlum við að hafa 3 fyrirliða eins og það er hérna í boltanum úti.. Mjög sérstök og skemmtileg regla..Á síðasta þriðjudag fórum við feðgar ásamt Kára og Bigga í golf.. Og var sú ferð
gríðar eftirminnanleg.. Byrjuðum á að leigja okkur tvo golfbíla og fylltum þá af bjór og svo var haldið í 18 holur..
Fyrri 9 holurnar voru einstaklingskeppni þar sem Björninn sigraði og Tóti kom fast á hæla honum og seinni 9 var spilað með Texas Scramble fyrirkomulagi þar sem tveir spila saman og betri boltinn gildir.. Þarna mættust tvo heitustu bloggin í boltanum í dag..america.bloggar.is vs. aumblikar.blogspot.com í einum af mest spennandi golfeinvígjum sem haldin hafa verið..

Reglurnar voru þannig að högg dróst frá fyrir hvern bjór sem liðið drakk og nota mátti 3 bíp (sem heyrast þegar golfbíllinn er settur í bakgír) til að trufla mótherjanna á 9 holunum.. Kári og Biggi leiddu framan af en á 5. holu gerðist umdeilt atvik.

Kári stillir boltanum á tí og gerir sig tilbúinn að taka Happy Gilmore skot(fyrir þá sem vita ekki hvað það er, þá nenni ég ekki að útskýra það) Tóti stendur 4 metra frá honum og ætlar að taka video af atvikinu.. Kára var enn í fersku minni bíp sem Bjössi notaði á Bigga á holunni á undan og drævar boltanum beint í bringunna á Tóta (ekki er verið að bulla hér).
Þetta var það rosalegasta og grófasta bragð sem notað hefur verið á golfvellinum síðan að Colin Montgomery hrækti í andlitið á Nick Faldo á 14. holu á St. Andrews vorið 1996..
Tóti fellur til jarðar og menn þriptust að honum.. Hann reyndist þó vera í góðu lagi fyrir utan væna kúlu á bringunni sem lítur út eins og 3 geirvartan.. Svaðalegt atvik.. Versta var að videoið klikkaði og hefðum við orðið frægir á youtube.com hefði það virkað..
En leiknum var haldið áfram og endaði með sigri Bjössa og Tóta í bráðabana eftir að Blikarnir höfðu haft 1 höggs forskot fyrir síðustu holu.. Gríðar góður dagur að baki og sérstaklega skemmtilegt að taka kappakstur á golfbílunum..

Annars ætlum við að fara að verða grimmir í tónleikunum næstu daga.. Stefnan er sett á Kings of Leon, Foo Fighters og Smashing Pumpkins sem eru allar að spila í Atlanta sem er hér rétt hjá.. Allir þessir tónleikar eru í byrjun Oktober..

Annars er alltaf gleði og gott veður hér og við biðjum að heilsa öllum..
kv
p.s. heimtum komment frá eftirtöldum aðilum og verður ekki bloggað aftur fyrr en þeir hafa kommentað.. : Binni Skúla, Egill Timbur, Bensa, Unni Borgþórs og Greg Stock eða Doktorinn..

Tóti, Sveinbjörn og Kári slakir á barnum

Punktur á kallinn

Golfcrewið á 16. holu..

Farið eftir golfkúluna, kúlan fannst ekki eftir höggið og er trúlegga þarna inni við 4 hryggjalið..

Klárir í kappakstur..

Peace Out